Innlent

Öryggisgæsla með hefðbundnu sniði á Menningarnótt

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Flugeldasýning Menningarnætur er afar vinsæll viðburður.
Flugeldasýning Menningarnætur er afar vinsæll viðburður. vísir/vilhelm
Jóhann Karl Þórisson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu, segir að öryggisgæsla á Menningarnótt verði með hefðbundnu sniði og hefur verið á öðrum hátíðum í sumar.  Þá verður vörubílum stillt upp á nokkrum stöðum til að auka öryggi.

Aðspurður hvort nýleg árás í Barcelona í gær, þar sem maður ók inn í hóp fólks í miðborg  borgarinnar, hefði áhrif á verklag þeirra fyrir hátíðina svarar Jóhann því neitandi. Ekki verða vopnaðir lögreglumenn á svæðinu og allt verður með hefðbundnu sniði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×