Sport

Dana segir að peningabardaginn muni slá öll met

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
"Djöfull erum við að fara að græða maður.“ Dana spjallar við Conor.
"Djöfull erum við að fara að græða maður.“ Dana spjallar við Conor. vísir/getty
Dana White, forseti UFC, segir að allt bendi til þess að bardagi Conor McGregor og Floyd Mayweather verði stærsti bardagi allra tíma í sjónvarpi.

Þar er hann að tala um hversu margir Bandaríkjamenn munu kaupa aðgang að bardaganum en skipuleggjendur hafa stefnt á að selja fimm milljón áskriftir (Pay Per View) að bardaganum.

Metið er 4,4 milljónir er Mayweather barðist við Manny Paqcuiao. Hagnaður af þeirri sölu var yfir 400 milljónum dollara.

„Það er rosalegt að sjá sölutölurnar. Það bendir allt til þess að við munum slátra gamla metinu,“ sagði White bjartsýnn um bardagann sem alla jafna er kallaður peningabardaginn.

Mayweather segir að hann muni græða 350 milljónir dollara, 37 milljarða króna, á bardaganum en White vill ekki gefa upp hvað Conor fær mikið.

„Það eru samt peningar sem munu breyta lífi hans.“

Það er rúm vika í bardaga Conors og Mayweather en bardaginn verður í beinni á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×