Enski boltinn

Liverpool hafnaði þriðja tilboðinu frá Barcelona

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sagan um Coutinho heldur áfram.
Sagan um Coutinho heldur áfram. vísir/getty
Forráðamenn Barcelona hafa ekki gefist upp á því að fá Philippe Coutinho frá Liverpool.

Barcelona sendi inn sitt þriðja tilboð í leikmanninn í dag og samkvæmt BBC er það sagt vera í kringum 114 milljónir punda eða tæpa 16 milljarða króna.

Börsungar fengu sama svar og áður frá Anfield: NEI !!! Í síðustu viku bauð Barcelona 90 milljónir punda fyrir leikmanninn.

Hvort Barcelona gefist nú upp eða hækki tilboð sitt enn frekar á næstunni verður að koma í ljós.


Tengdar fréttir

Coutinho ekki með gegn Crystal Palace

Philippe Coutinho leikur ekki með Liverpool gegn Crystal Palace í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn kemur vegna bakmeiðsla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×