Erlent

Árásarmennirnir höfðu skipulagt frekari hryðjuverk

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Lögreglan telur að sprenging í bænum Alcanar hafi eyðilagt sprengjuefni árásarmannanna.
Lögreglan telur að sprenging í bænum Alcanar hafi eyðilagt sprengjuefni árásarmannanna.
Mennirnir grunaðir um hryðjuverkaárásirnar í Barcelona og Cambrils í gær ætluðu að fremja frekari hryðjuverk samkvæmt frétt BBC.   Lögreglan í Katalóníu segir að sprengingin í Alcanar á miðvikudag hafi eyðilagt sprengjuefni árásarmannanna samkvæmt. Því hafi þeir þurft að breyta um aðferð og nota bifreiðar til þess að keyra inn í mannfjölda. Yfirvöld höfðu áður sagt að sprengingin tengdist árásunum. 

Hinn 17 ára gamli Moussa Oukabir er grunaður um að hafa verið ökumaður sendiferðabílsins sem ók á fólk á Römblunni. Talið er að hann sé á meðal þeirra fimm árásarmanna sem lögregla skaut til bana í árásinni í Cambrils en það hefur ekki verið staðfest.


Tengdar fréttir

Lögreglan á Spáni lýsir eftir 18 ára pilti

Hinn 18 ára gamli Moussa Oukabir er grunaður um að hafa keyrt hvítum bíl inn í hóp fólks með þeim afleiðingum að 13 létust og rúmlega hundrað manns særðust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×