Innlent

Dagur vottar borgarstjóra Barcelona samúð sína

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, hefur sent borgarstjóra Barcelona, Ada Colau, samúðarskeyti vegna árásanna í gær.  Hann vottar Colau samúð sína fyrir hönd allra Reykvíkinga.

Dagur leggur áherslu á að mikilvægt sé að standa vörð um samfélagið þar sem gildi á borð við frelsi, réttlæti, lýðræði og umburðarlyndi geri íbúum kleift að lifa saman í sátt og samlyndi. Þá sé mikilvægt að vinna gegn öflum haturs og ofbeldis sem leiði af sér voðaverk sem þessi.

Dagur segir hug borgarbúa vera hjá fórnarlömbunum, íbúum Barcelona og öllum þeim sem eiga um sárt að binda vegna árásarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×