Íslenski boltinn

Þórsarar kólnaðir niður í Inkasso deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ivan Bubalo skoraði jöfnunarmark Fram í kvöld.
Ivan Bubalo skoraði jöfnunarmark Fram í kvöld. Vísir/Ernir
Þórsarar eru að missa af lestinni í baráttunni um Pepsi-deildar sæti eftir jafntefli á heimavelli á móti Fram  á Þórsvellinum á Akureyri í kvöld í 17. umferð Inkasso deildar karla í fótbolta.

Þórsliðið komst tvisvar yfir í leiknum en Framara jöfnuðu í bæði skiptin.

Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Þórsarar tapa stigum og þessi tvö stig í síðustu í þessum þremur leikjum eru varla nóg fyrir liði að vera með fyrir alvöru í baráttunni um tvö efstu sætin.

Þórsarar hafa því kólnað aftur niður eftir að verið eitt allra heitasta lið deildarinnar um mitt sumar. Þórsliðið byrjaði illa í sumar en náði síðan í sextán stig af átján mögulegum í níundu til fjórtándu umferð.

Kristján Örn Sigurðsson kom Þór í 1-0 á 19. mínútu en Sigurpáll Melberg Pálsson jafnaði fyrir Fram þrettán mínútum síðar.

Gunnar Örvar Stefánsson kom Þór aftur yfir á 48. mínútu og þannig var staðan í tæpan hálftíma eða þar til að Ivan Bubalo jafnaði á 76. mínútu.

Mark Ivan Bubalo tryggði Fram stig en liðið er nú taplaust í síðustu fjórum leikjum og hefur skorað tvö mörk eða fleiri í þeim öllum.

Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá úrslitaþjónustunni úrslit.net.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×