Innlent

Rán á Subway í JL-húsinu

Stefán Ó. Jónsson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Lögreglan ræðir hér við vitni að ráninu á ellefta tímanum í kvöld.
Lögreglan ræðir hér við vitni að ráninu á ellefta tímanum í kvöld. Vísir/KTD
Lögreglan leitar nú manns sem rændi samlokustaðinn Subway í JL-húsinu í vesturbæ Reykjavíkur um klukkan 22:30 í kvöld.

Maðurinn hafði á brott með sér „einhverja peninga“ en nákvæm upphæð liggur ekki fyrir að svo stöddu.

Að sögn sjónarvotta var maðurinn ekki vopnaður og hljóp í austurátt, eftir Hringbrautinni, að ráninu loknu.

Þegar blaðamann Vísis bar að garði var nokkur fjöldi lögreglubíla á svæðinu. Lögreglumenn eru nú í óðaönn við að ræða við vitni, starfsmenn jafnt sem viðskiptavini staðarins. 

Töluverður fjöldi lögreglumanna var kominn á vettvang innan örfárra mínútna.Vísir/KTD



Fleiri fréttir

Sjá meira


×