Lífið

Engdist um af sársauka þegar hann fékk krampa í kálfann

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alveg hreint hrikalegur krampi.
Alveg hreint hrikalegur krampi.
Það getur verið nokkuð sársaukafullt að fá krampa. Eitt vinsælasta myndband vikunnar á Reddit er af manni sem virðist vera að ganga í gegnum einhvern allra versta krampa sögunnar í kálfanum.

Myndbandið er ekki fyrir viðkvæma og þjáist maðurinn augljóslega mikið. Svo mikil hreyfing er á kálfa mannsins að ætla mætti að einhver vera, óboðinn gestur, væri inni í kálfa mannsins að skríða fram og til baka.

Eins og svo oft áður er sjón sögu ríkari. 

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×