Enski boltinn

Tottenham með augastað á markmanni Southampton

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Paulo Gazzaniga.
Paulo Gazzaniga. Mynd/Sky Sports
Paulo Gazzaniga, markmaður Southampton, gæti verið á leið til Tottenham ef marka má heimildir SkySports.

Þessi argentínski markmaður hefur verið á mála hjá Southampton síðan 2012. Hann var á láni hjá spænska liðinu Rayo Vallecano á síðasta tímabili.

Gazzaniga yrði líklega þriðji markmaður Tottenham, en þar eru fyrir þeir Hugo Lloris og Michel Vorm.

Tottenham hefur enn ekki keypt leikmann í sumar, en eru við það að semja við Davinson Sanchez frá Ajax.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×