Bílar

Kia með sölumet í Evrópu

Finnur Thorlacius skrifar
Kia cee´d.
Kia cee´d.
Kia setti sölumet í Evrópu á fyrstu sex mánuðum ársins en alls seldi suður-kóreski bílaframleiðandinn 251.472 bíla í álfunni sem er 9,5% söluaukning frá sama tíma í fyrra. Kia hefur aldrei selt fleiri bíla í Evrópu á sex mánaða tímabili. Markaðshlutdeild Kia jókst úr 2,8% í 3% í Evrópu og hefur aldrei verið hærri.

Hybrid og rafbílar voru 7,5% af heildarsölu Kia í Evrópu á fyrstu sex mánuðum ársins. ,,Söluaukning Kia hefur aukist þökk sé nýjum módelum sem hafa verið sett á markað á árinu og aukinni framleiðslu á bílum með rafmótor. Hinir nýju Rio og Picanto eru söluhæstir en Niro hefur einnig náð góðri sölu sem og Optima í öllum sínum útfærslum sem GT, Sportwagon og Plug-in Hybrid.

Sala á rafbílum og Plug-in Hygbrid bílum jókst um 1% frá sama tíma í fyrra sem er mjög jákvætt. Þetta er í fyrsta skipti sem Kia selur meira en 250.000 bíla í Evrópu á sex mánaða tímabili og við erum að sjálfsögðu mjög ánægð og stolt með þann árangur," segir Michael Cole, framkvæmdastjóri hjá Kia Motors.

Á Íslandi hefur Kia átt gríðargóðu gengi að fagna og á fyrstu sex mánuðum ársins seldi Askja, umboðsaðili Kia á Íslandi 1.576 Kia bifreiðar og var Kia með rúmlega 11% markaðshlutdeild. Mikil aukning hefur átt sér stað í sölu Kia á árinu og sérstaklega til einstaklinga og smærri fyrirtækja. Kia er önnur mest selda bíltegundin á Íslandi á þessu ári, eins og í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×