Glamour

Nýr ritstjóri breska Vogue hefur störf í dag

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Í dag er formlega fyrsti dagur nýs ritstjóra breska Vogue, Edward Enninful. Edward hefur verið mikið í fréttum undanfarið því hann hefur gert ansi miklar breytingar á ritstjórateymi blaðsins. Ráðning Edwards vakti mikla athygli. Hann er fyrsti karlmaðurinn til að gegna þessu starfi, og bakgrunnur hans er í stíliseringu en ekki blaðamennsku. 

Það eru margar spennandi breytingar í höfn hjá breska Vogue, og stofnaði Edward meðal annars Snapchat-aðgang fyrir tímaritið. Hann hefur ráðið Naomi Campbell og Kate Moss í ritstjórn blaðsins, og einnig hina ungu Adwoah Aboah. Edward hefur lengi barist fyrir fjölbreytni í tískuheiminum, og má búast við því að hann haldi því áfram. 

Edward segist hafa beðið spenntastur eftir að segja pabba sínum frá nýju stöðunni, en hann flutti með konu sinni og sex börnum frá Ghana til Bretlands. 

Við hjá Glamour getum ekki beðið eftir fyrsta tímariti Vogue undir stjórn Edwards.

Day One !!! Thank you @stellamccartney for the Major balloons xoxo

A post shared by Edward Enninful, OBE (@edward_enninful) on






×