Glamour

Steldu stílnum fyrir verslunarmannahelgina

Ritstjórn skrifar
Það styttist í verslunarmannahelgina og við erum að sjálfsögðu byrjaðar að hugsa um klæðnaðinn. Stelum stílnum af Alexu Chung, því hennar dress hentar vel fyrir íslenskt veðurfar. Alexa er reglulegur gestur á tónlistarhátíðum eins og Glastonbury í Englandi og veit alveg hvernig á að klæða sig. Góð stígvél eru lykilatriði, því eins og við vitum getur veðrið breyst á svipstundu. 

Barbour jakkinn fæst í Geysi og kostar 44.800 kr.

Skyrtan kostar 9.990 kr og fæst í Selected

Stígvélin fást í Ellingsen og eru frá Viking. Þau eru á útsölu og kosta 7.192 kr. 

Buxurnar eru úr Zöru og kosta 5.995 kr. 






×