Golf

Ólafía Þórunn spilar heima á Íslandi í næstu viku: Hlakka ótrúlega mikið til

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vill láta gott af sér leiða.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vill láta gott af sér leiða. Mynd/Twitter-síða Ólafíu
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir mun ásamt KPMG halda góðgerðargolfmót til styrktar Barnaspítala Hringsins en hún nær nú að koma heim til Íslands eftir mikla törn.

Góðgerðargolfmótið fer fram á á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar en þetta verður í fyrsta sinn sem Ólafía Þórunn tekur þátt í móti á Íslandi síðan að hún tryggði sig inn á LPGA-mótaröðina.

Mótið er einstakt og sögulegt að því leyti að til leiks mæta fimm LPGA kylfingar og gefst öllum þátttakendum tækifæri að spila nokkrar holur með einum þeirra. Auk þeirra munu nokkrir aðrir af bestu kylfingum landsins einnig taka þátt í mótinu. Fjöldi þátttakenda mun takmarkast við átján holl en um er að ræða boðsmót þar sem fyrirtæki og einstaklingar kaupa sæti í mótinu og styrkja þannig gott málefni en þátttökugjöldin renna óskipt til Barnaspítala Hringsins.

„Ég hlakka ótrúlega mikið til að koma heim eftir nokkuð langa og stranga keppnislotu. Ég hef nánast ekkert spilað golf heima síðan á landsmótinu í fyrra þannig að það verður mjög gaman að koma og spila með góðum félögum og styrkja um leið þetta frábæra málefni sem er mér mjög hugleikið.  Höfum gaman og #verumgóð“ segir Ólafía Þórunn í fréttatilkynningu um mótið.

„Við erum ákaflega stoltir stuðningsaðilar Ólafíu Þórunnar og það að standa að svona viðburði með henni sameinar vel markmið okkar um að styðja við golfíþróttina og að láta gott af okkur leiða,“ sagði Jón S. Helgason framkvæmdarstjóri KPMG í fréttatilkynningunni. „Við vonum bara að sem flestir komi og horfi á þessa kylfinga, það er ekki á hverjum degi sem við fáum LPGA spilara til landsins að spila golf,“ sagði Jón.

Golfklúbbur Garðabæjar og Kópavogs kemur að framkvæmd mótsins og er mótið haldið á Leirdalsvelli.  

„Það er mikill heiður að halda góðgerðarmót KPMG og Ólafíu Þórunnar hér hjá GKG og leggja góðu málefni lið um leið og við sýnum Ólafíu Þórunni þakklætisvott fyrir framlag hennar til golfíþróttarinnar.  Við hjá GKG leggjum áherslu á að reka fjölskylduvænan golfklúbb og liður í því er öflugt barna- og unglingastarf og að auka hlut kvenna í golfíþróttinni. Hjá GKG eru um 650 börn og unglingar sem nýta sér þjónustu GKG á hverju ári. Eftir framgöngu Ólafíu Þórunnar á stóra sviðinu og þeirri staðreynd að hún keppir nú á mótaröð þeirra bestu sjáum við aukinn áhuga stúlkna á golfíþróttinni,“ sagði Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri GKG, í umræddri fréttatilkynningu.


Tengdar fréttir

Ólafía Þórunn verður með á opna breska

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður með á opna breska meistaramótinu í golfi sem fer fram á Kingsbarns Golf Links golfvellinum í Skotlandi um Verslunarmannahelgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×