Innlent

Forsætisráðherra neitar því að hann beri ábyrgð á uppreist æru Roberts Downey

Kjartan Kjartansson skrifar
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur verið sagður hafa borið ábyrgð á því að kynferðisbrotamaður fékk uppreist æru. Hann neitar því.
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, hefur verið sagður hafa borið ábyrgð á því að kynferðisbrotamaður fékk uppreist æru. Hann neitar því. Vísir/GVA
Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, segist ekki hafa gegnt embætti innanríkisráðherra tímabundið þegar tillaga um að veita kynferðisbrotamanninum Robert Downey uppreist æru var afgreidd úr ráðuneytinu.

Í færslu á Facebook-síðu sinni í kvöld hafnar forsætisráðherra því að hafa verið starfandi innanríkisráðherra þegar ráðuneytið leiddi málið til lykta. Vísar hann til leiðara Fréttablaðsins í dag sem það var fullyrt að Bjarni hafi skrifað upp á ákvörðunina sem sitjandi innanríkisráðherra.

„Staðreynd málsins er sú að ég gegndi ekki embætti fyrir innanríkisráðherra þegar þessi mál voru til lykta leidd í ráðuneytinu. Ekki heldur þegar þau fóru fyrir ríkisstjórn eða voru lögð fyrir forseta Íslands til staðfestingar. Það sætir því furðu að kallað sé eftir því að ég svari fyrir þá ákvörðun,“ skrifar Bjarni.

Hann segir tillöguna um Robert hafa verið kynnta á ríkisstjórnarfundi 15. september í fyrra af þáverandi forsætisráðherra. Slík mál séu aðeins kynnt en ekki samþykkt í ríkisstjórn. Innanríkisráðuneytið hafi sent tillöguna til forseta til samþykktar 16. september.

Sagðist hafa tekið við niðurstöðu ráðuneytisins

Hugmyndir um að núverandi forsætisráðherra hafi verið yfir innanríkisráðuneytinu þegar tillagan um að veita Roberti uppreist æru virðist eiga rætur sínar í viðtali við Bjarna á RÚV fyrr í sumar.

Bjarni var spurður út í hugsanlega ábyrgð sína á ákvörðuninni um að veita Roberti uppreist æru í frétt RÚV 16. júní. Þar kom fram að Bjarni hefði verið starfandi innanríkisráðherra á meðan Ólöf Nordal var í veikindaleyfi.

„Nei, ég tók við niðurstöðu úr ráðuneytinu sem hafði bara fengið sína hefðbundnu meðferð,“ sagði Bjarni við RÚV þegar hann var spurður hvort hann hefði átt aðkomu að ákvörðuninni.

Í myndskeiðinu sem fylgir fréttinni á vef RÚV kemur ekki fram í máli Bjarna að hann hafi verið starfandi innanríkisráðherra á þeim tíma þegar ákvörðunin var tekin. Í texta fréttarinnar kemur aðeins fram að hann hafi gegnt embættinu á meðan Ólöf var í veikindaleyfi.

Morgunblaðið staðhæfði í morgun að Bjarni hefði gegnt embætti Ólafar frá 27. október til 18. nóvember í fyrra. Ólöf hafi undirritað tillöguna 14. september. Ekki kemur fram hver heimildin fyrir tímalínu Morgunblaðsins er en hún birtist með viðtali við Sigríði Á. Andersen, núverandi dómsmálráðherra og samflokkskonu Bjarna.

Getur óskað eftir lögmannsréttindum aftur þrátt fyrir kynferðisbrotadóm

Robert Downey hét áður Róbert Árni Hreiðarsson. Honum var veitt uppreist æru í september. Hann var starfandi lögmaður þegar hann var dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að brjóta gegn fjórum ungum stúlkum árið 2008.

Mál hans komst í hámæli í sumar þegar Hæstiréttur ákvað að Robert gæti fengið lögmannsréttindi sín aftur með vísan til þess að stjórnvöld hefðu veitt honum uppreist æru.

Hann hefur síðan verið kærður aftur fyrir kynferðisbrot.

Uppfært 22:46 Síðustu millifyrirsögn breytt. Af henni mátti upphaflega skilja að Robert Downey hefði þegar fengið lögmannsréttindi sín aftur.


Tengdar fréttir

Viðbrögðin hafa rétt við bakið á þolendum Róberts Downey

Vinna er hafin við frumvarp sem dómsmálaráðherra ætlar að leggja fram í haust, um breytingar á uppreist æru. Faðir stelpu sem hefur orðið fyrir ofbeldi fagnar frumvarpinu og vill halda áfram að ræða þessi mál. Enn fást engin svör frá

„Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur“

"Þú rændir okkur æskunni, þú rændir okkur frelsinu. Þetta eru okkar líf og okkar saga. Hvorki þú, lögfræðingur þinn, né vanhugsuð lög geta þaggað niður í okkur. Við eigum þessa sögu. Við eigum okkur sjálfar. Við erum frjálsar.“ Svona hljóma upphafsorðin í ræðu þeirra Önnu Katrínu Snorradóttur, Höllu Ólöfu Jónsdóttur, Glódísar Töru og Nínu Rúnar Bergsdóttur sem flutt var við mikið lófaklapp að aflokinni Druslugöngu.

Segir æru ráðuneytisins vera í húfi vegna máls Roberts Downey

Benedikt Erlingsson, leikari og leikstjóri segir æru ráðuneytisins og stjórnsýslunnar allrar vera í húfi. Ráðuneytið þurfi að svara fyrir þá ákvörðun að veita Robert Downey uppreist æru. Þetta segir hann í stöðuuppfærslu á Facebook.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×