Innlent

Segir óþarft að elta veðrið um helgina

Sæunn Gísladóttir skrifar
Þeir sem hyggjast njóta verslunarmannahelgarinnar í botn hafa fjöldann allan af útihátíðum til að velja úr, hvort sem þeir vilja vera í höfuðborginni að njóta Innipúkans í Kvosinni eða fara alla leið austur í Neskaupstað og upplifa Neistaflug sem hefur verið haldið síðan 1993.

Fjölskylduhátíðir eru í boði víða, tónlistaruppákomur eru í hverjum landshluta og hægt er að keppa í fjölbreyttum íþróttum eins og til dæmis mýrarbolta og reiptogi. Úrval af tónleikum er sjaldan meira en um helgina, á Norðanpaunki koma til að mynda yfir fjörutíu hljómsveitir fram.

Teitur Arason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir keimlíkt útlit fyrir allt landið um helgina. „Fólk ætti ekki að þurfa að velja sér stað eftir veðri það er enginn landshluti betri hvað það varðar.

Tíðindin um helgina eru aðallega að sjaldan hefur verið rólegra veður um verslunarmannahelgina en núna, vindurinn er svo hægur. Það er mjög mikilvægt fyrir þá sem ætla að vera í tjaldi til dæmis og líka þá sem ferðast með aftanívagn. Það er ekki útlit fyrir að verði vandræði vegna vinds um helgina. Það eru líka góðar fréttir fyrir siglingar til Vestmannaeyja,“ segir hann.

„Það er engin sérstök hitabylgja í kortunum. Þetta er bara ágætis íslenskur sumarhiti, 10 til 15 stig, en getur farið hærra þar sem sólin nær að skína. Þetta er í kaldara lagi uppi í háloftunum. Það verður skýjað með köflum, sem sagt skýjaðra en hitt en sést samt til sólar inn á milli. Það eru líkur á skúrum um allt landið og mestar líkur á þeim síðdegis,“ segir Teitur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×