Golf

Ólafía elskar að spila í roki og rigningu

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafía Þórunn.
Ólafía Þórunn. Vísir/Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur í dag keppni á Opna breska meistaramótinu í golfi, fyrst íslenskra kylfinga. Ólafía hefur þar með enn einu sinni brotið blað í sögu íþróttarinnar á Íslandi en hún og Valdís Þóra Jónsdóttir hafa hvor keppt á sínu risamótinu til þessa á árinu.

Opna breska meistaramótið karlamegin er elst stórmótanna en í ár fór það fram í 146. sinn. Mótið hjá konunum er öllu yngra og er nú haldið í 42. sinn. Það fer fram á Kingsbarn-vellinum í Fife á austurströnd Skotlands.

Þar ættu að vera aðstæður sem henta Ólafíu vel en hún spilaði afar vel á Opna skoska meistaramótinu um síðustu helgi þar sem hún náði sínum besta árangri á LPGA-mótaröðinni og hafnaði í þrettánda sæti. Þess fyrir utan er spáð rigningu og roki um helgina, rétt eins og var á Opna skoska um síðustu helgi. Ólafíu leið vel í slíkum aðstæðum.

Rok og rigning í kortunum

Derrick Moore er þjálfari Ólafíu og hefur verið undanfarin ár. Hann sagði við Fréttablaðið í gær að veðurspáin væri góð tíðindi fyrir Ólafíu.

„Það eru í raun bestu aðstæðurnar fyrir hana,“ sagði hann í léttum dúr. „Þessar bestu eru vanar því að spila í góðu veðri en þegar það fer að reyna mikið á þá þarf að nota ímyndunaraflið og berjast. Það verður ekki mikið um fallegt hátt boltaflug þar sem boltinn lendir fallega á flötinni. En Ólafía elskar svona veður,“ bætti hann við.

Sjá einnig: Ólafía: Því verri sem aðstæðurnar eru því betra fyrir mig

Júlímánuður var sérstaklega góður fyrir Ólafíu en þá komst hún í gegnum niðurskurðinn á öllum þremur mótunum sem hún tók þátt í og stórbætti stöðu sína á peningalista mótaraðarinnar, þar sem hún er nú rétt utan efstu 100 kylfinga sem þarf til að endurnýja þátttökurétt sinn fyrir næstu leiktíð.

Samkeppnin mun harðari

„Ég er alltaf bjartsýnn fyrir hönd Ólafíu. Árangurinn um síðustu helgi var frábær en samkeppnin verður mun harðari nú enda flestir af bestu kylfingum heims að taka þátt. En að sama skapi er þetta bæði völlur og aðstæður sem henta Ólafíu vel.“

Opna skoska meistaramótið verður sextánda mót Ólafíu á LPGA-mótaröðinni á annasömu tímabili. Hún hefur spilað afar stöðugt golf að undanförnu, sérstaklega í júlí, þar sem hún náði þrívegis að spila hring á undir 70 höggum og aldrei var hún meira á einu höggi yfir pari. Slíkur stöðugleiki er nauðsynlegur til að komast í gegnum niðurskurðinn á hvaða móti sem er.

Stutt í St. Andrew’s

Kingsbarn Links-völlurinn er í aðeins 10 km fjarlægð frá St. Andrews, sem öllu jöfnu er kallað heimili golfíþróttarinnar. Golfklúbburinn í Kingsbarn var stofnaður árið 1793 en völlurinn sem er nú spilað á var tekinn í notkun árið 2000.

Sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni alla keppnisdagana. Útsending hefst klukkan 10 í dag en Ólafía Þórunn á rástíma klukkan 12.49. Fylgst verður með gangi mála í beinni textalýsingu á íþróttavef Vísis.

eirikur@365.is


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×