Sport

Wladimir Klitschko hættur í boxinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Wladimir Klitschko.
Wladimir Klitschko. Vísir/Getty
Wladimir Klitschko, fyrrum heimsmeistari í þungavigt, er búinn að ákveða að setja boxhanskana upp á hillu.

Klitschko ætlar ekki að berjast aftur við Bretann Anthony Joshua sem vann hann með eftirminnilegum hætti í apríl síðastliðnum. BBC segir frá.

Anthony Joshua var að vonast eftir því að Klitschko væri til í annan bardaga sem átti að fara fram í Las Vegas 11. nóvember næstkomandi. Það verður hinsvegar ekkert af því.

Wladimir Klitschko er 41 árs gamall eða fjórtán árum eldri en Anthony Joshua.

Klitschko vann tvo heimsmeistaratitla og þá varð hann Ólympíumeistari í boxi í Atlanta árið 1996. Hann hélt heimsmeistaratitlinum í þungavigt frá 2006 til 2015.

Klitschko tapaði tveimur síðustu bardögum sínum sem voru á móti Tyson Fury í nóvember 2015 og svo á móti Jones í apríl. Fram að því hafði hann unnið 25 bardaga í röð frá 2004 til 2015.

Wladimir Klitschko getur nú farið að einbeita sér að fjölskyldunni og öðrum hlutum en hann er trúflofaður bandarísku leikkonunni Hayden Panettiere og eiga þau dótturina Kaya Evdokia Klitschko saman.

„Ég hef afrekað allt sem mig dreymdi um og nú vil ég byrja líf mitt eftir íþróttirnar,“ sagði Wladimir Klitschko sem vann 64 bardaga á ferlinum en tapaði 5.

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég gæti átt svona langan og ótrúleg farsælan boxferil,“ sagði Klitschko.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×