Tónlist

Dannað og fullorðið fólk á ferð um landið

Stefán Þór Hjartarson skrifar
GÓSS er mætt á mölina og skemmtir borgarbúum í kvöld í lokahnykk sumarsins.
GÓSS er mætt á mölina og skemmtir borgarbúum í kvöld í lokahnykk sumarsins. Vísir/Stefán
„Þetta gekk alveg vonum framar, ég verð nú að segja það. Þetta var alveg gríðarlega vel sótt, góðar viðtökur og fallegt fólk á landsbyggðinni, það er mun fegurra en í bænum. Þetta var alls engin svaðilför hjá okkur, það gekk allt upp og gekk vel. Það kom ekkert óvænt upp á,“ segir Sigurður Guðmundsson tónlistarmaður en hann og Sigríður Thorlacius ferðuðust nú í júlí um landið undir nafninu GÓSS – með þeim í för var svo Guðmundur Óskar en hann er auðvitað bæði meðleikari Sigríðar í Hjaltalín og bróðir Sigurðar. Síðasta stoppið þeirra verður í kvöld er þau enda túrinn í borginni, réttara sagt á Bryggjunni Brugghúsi.

„Þetta stóð allt dálítið upp úr, svona miðað við hversdagsleikann. Veðrið var mjög gott svona um miðbikið. Flateyri var mjög skemmtileg og Bjarnarfjörðurinn stóð kannski svolítið upp úr – þangað höfðum við eiginlega ekki komið áður. Þar var mjög skemmtilegt að vera og ég væri hreinlega til í að kaupa hús þar við tækifæri.

Við spiluðum líka í Jarðböðunum við Mývatn en það leit ekki vel út í byrjun því að það var alveg grenjandi rigning þegar við komum. Það átti að stytta upp um hádegi – sem það gerði, fimm mínútum yfir tólf. Það var líka ákveðinn hápunktur að það skyldi hafa gengið upp,“ svarar Sigurður spurður að því hvort eitthvað sérstakt hafi staðið upp úr frá ferðalaginu þeirra.

Eru engar safaríkar sögur sem þú ætlar að segja okkur frá ferðalaginu?

„Sko, sögur eru nú þess eðlis að þær gerast yfirleitt þegar menn eru alveg svívirðilega drukknir eða ungir og vitlausir og við vorum eiginlega hvorugt. Við erum orðin svo dannað og fullorðið fólk svo að þetta eru nú varla orðið sögur til næsta bæjar nú orðið hjá okkur. Allir voru vinir allan tímann og skemmtu sér konunglega – svo var bara verið að njóta þess að vera til og á ferðalagi,“ segir Sigurður og því til staðfestingar tekur hann sér smá hlé frá viðtalinu til að sinna syni sínum.

Hvað er svo fram undan hjá ykkur?

„Við erum auðvitað að spila á Bryggjunni í kvöld, það er lokahnykkurinn hjá okkur. Annars þá náttúrulega setjum við okkur aftur í gang um jólin – nú er það bara að njóta afgangsins af sumarfríinu. Síðan hefst vinnan aftur í lok ágúst þegar við bræðurnir förum aftur í leikhúsið, svo heldur lífið bara áfram.“

Sigríður og Siggi hafa auðvitað verið að fylla Hörpuna endurtekið á jólatónleikunum sínum og svo hafa þeir bræður Sigurður og Guðmundur verið að ljá leikverkum tóna í Þjóðleikhúsinu með góðum árangri.

GÓSS kemur fram á Bryggjunni Brugghúsi í kvöld klukkan tíu og má næla sér í miða á tix.is.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×