Körfubolti

Curry segist ekki hafa verið að gera grín að LeBron James

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Stephen Curry.
Stephen Curry. Vísir/Getty
Stephen Curry var ekki að gera lítið úr LeBron James með dansinum sínum í brúðkaupi Harrison Barnes um síðustu helgi.

Gamli NBA-leikmaðurinn Brendan Haywood, sem lék með Cleveland Cavaliers á sínum tíma, birti myndbandið af Curry á Instagram-síðu sinni á sunnudaginn og skrifaði undir: „Skotið á einhvern.“

Myndabandið má sjá hér fyrir neðan.







Margir álitu sem svo að Curry hafi þarna verið þarna að hæðast að gömlu myndbandi þar sem LeBron James var að dansa við Kyrie Irving með sömu hreyfingum.

Kyrie Irving var líka í þessu dansmyndbandi af Curry sem var aðeins til þess að henda olíu á þann eld.

Kyrie Irving er búinn að fá nóg af samstarfinu við LeBron James og óskaði fyrr í sumar að vera skipt til annars liðs.

Stephen Curry segist hafa verið að dansa eins og LeBron James af virðingu fyrir kollega sínum úr NBA-deildinni.

„Ég er búinn að horfa á myndbandið (hans James) tvisvar á dag síðan að það kom á netið því þetta er uppáhaldsmyndbandið mitt í öllum heiminum,“ sagði Stephen Curry í viðtali við The Athletic.

„Hann gerði þetta lag vinsælt með því að búa til þetta myndband. Það lifir. Ég hef verið að dansa svona útaf honum, heima hjá mér, í matnum eða alltaf þegar eitthvað gott gerist. Ég tek þennan dans af því ég er hrifinn af dansinum og hann fær mig til þess að hlæja. Ég er ekki að gera grín að honum,“ sagði Curry.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×