Erlent

Hin­rik prins vill ekki verða jarð­settur á sama stað og Margrét Þór­hildur

Atli Ísleifsson og Heimir Már Pétursson skrifa

Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, vill ekki verða jarðsettur á sama stað og drottningin þegar hann fellur frá. Frá þessu greindi skrifstofa dönsku konungshallarinnar í dag.

Til þessa hefur verið gert ráð fyrir að þau hjónin myndu hvíla hlið við hlið í steinkistum í dómkirkjunni í Hróarskeldu þegar sá tími kemur. Myndhöggvarinn Bjørn Nørgaard hefur þegar höggvið út lok á steinkistur þeirra hjóna en nú lítur út fyrir að Margrét Þórhildur muni hvíla ein í dómkirkjunni í Hróarskeldu.

Drottningin samþykk

Í tilkynningu frá konungshöllinni kemur fram að prinsinn hafi greint drottningunni frá hugmyndum sínum fyrir nokkru og sé hún þeim samþykk. Ákvörðun prinsins breytir þó ekki áætlunum Margrétar Þórhildar um að verða jarðsett í dómkirkjunni í Hróarskeldu.

„Það hefur komið fram í fjölmiðlum að Prinsinn óski þess að verða jarðsettur í Frakklandi. Það er ekki rétt. Hann óskar þess enn að verða jarðsettur í Danmörku,“ segir í tilkynningunni.

Prinsinn ósáttur með stöðu sína

Prinsinn er ósáttur við að í opinberu lífi hefur honum aldrei verið stillt upp samhliða drottningunni og ekki hlotið titilinn „hans konunglega hátign“ og hefur því ákveðið að það skuli ná fram yfir gröf og dauða.

Lene Balleby, upplýsingafulltrúi drottningar, segir í einkaviðtali við Berlingske að það sé ekkert leyndarmál að prinsinn hafi verið ósáttur við stöðu sína og þann titil sem hann ber innan konungsfjölskyldunnar í mörg ár.

Óánægja hans hefur farið vaxandi á undanförnum árum. „Fyrir prinsinn er ákvörðun hans um að liggja ekki hinstu hvílu við hlið drottningar eðlilegt framhald þeirrar stöðu sem honum hefur verið úthlutað og að ekki hefur verið orðið við óskum hans um breytingu þar á. Prinsinn er einfaldlega þeirrar skoðunar að hann eigi ekki að vera við hlið drottningar í dauðanum þegar honum var meinað það í lífinu,” segir Balleby í viðtali við Berlingske.

Með þessari ákvörðun er Hinrik að rjúfa aldagamla hefð um að konungshjón Danmerkur hvíli hlið við hlið.

Stóra fýlan

Árið 2002 gaf Hinrik Berlingske sögufrægt viðtal þar sem hann lýsti óánægju sinni með að hann skyldi ekki fá konunglega tign en þegar viðtalið kom út var hann þegar farinn til vínekru sinnar í Frakklandi. Margrét Þórhildur, Friðrik krónprins og Jóakim prins eltu þá gamla maninn þangað til að sleikja úr honum fýluna og þessi atburður gjarnan kallaður “Stóra fýlan” í Danmörku. Síðan þá hefur prinsinn af og til ítrekað þessa óánægju án þess að fá konunglegan titil.

Hinrik prins fæddist í Talence í Frakklandi árið 1934 og er hann því 83 ára gamall. Hann og Margrét Þórhildur drottning gengu í hjónaband árið 1967.

Í frétt Stöðvar 2 sem fylgir fréttinni má meðal annars sjá bút úr viðtali Heimis Más Péturssonar við Margréti Þórhildi frá því í janúar. Þar spurði hann drottninguna út í hvernig hún sæi fyrir sér að hlutverk konungs breytist þegar krónprins Danmerkur tekur við af henni í framtíðinni.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×