Fótbolti

Viðar komst áfram en dönsku Íslendingaliðin úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Viðar Örn í leik Maccabi og KR í vesturbæ Reykjavíkur.
Viðar Örn í leik Maccabi og KR í vesturbæ Reykjavíkur. vísir/andri marinó
Maccabi Tel Aviv tryggði sér í dag sæti í umspilsumferð Evrópudeildar UEFA en liðið vann 2-0 samanlagðan sigur á gríska liðinu Panionios.

Leik liðanna lauk með 1-0 sigri Maccabi í Grikklandi en markið var sjálfsmark heimamanna. Viðar Örn Kjartansson skoraði mark Maccabi í 1-0 sigri á heimavelli í fyrri leiknum.

Þetta var fjórði sigur Maccabi í jafn mörgum Evrópuleikjum í sumar en liðið sló KR úr leik í 2. umferð forkeppninnar.  Viðar Örn var í byrjunarliði Maccabi í kvöld og spilaði fyrstu 83 mínúturnar.

Dönsku Íslendingaliðin Bröndby og Lyngby féllu úr leik í keppninni í kvöld. Hjörtur Hermansson spilaði allan leikinn í 2-0 tapi fyrir Hajduk Split í Króatíu. Fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli.

Hallgrímur Jónasson var ekki í liði Lyngby vegna mistaka í skráningu en liðið tapaði í kvöld fyrir rússneska liðinu Krasnodar, 3-1, og 5-2 samanlagt.

FH er eitt þeirra 44 liða sem er komið í umspilsumferð Evrópudeilarinnar en dregið verður á morgun.

Meðal þeirra liða sem FH getur mætt er Ajax, Athletic Bilbao, AC Milan og Everton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×