Innlent

Jón Gunnarsson sigldi með Akranesi á Þjóðhátíð í morgun

Jakob Bjarnar skrifar
Þeir voru kampakátir úti í Eyjum nú fyrir stundu félagarnir Jón ráðherra og Ásmundur Friðiksson þingmaður.  Milli þeirra er Halla Ragnarsdóttir, eiginkona Jóns.
Þeir voru kampakátir úti í Eyjum nú fyrir stundu félagarnir Jón ráðherra og Ásmundur Friðiksson þingmaður. Milli þeirra er Halla Ragnarsdóttir, eiginkona Jóns. visir/óskar pétur
Jón Gunnarsson samgöngu- og sveitarstjórnarmálaráðherra fór í morgun til Eyja. Og ferðamáti hans er athyglisverður í ljósi þess sem á undan er gengið; hann sigldi með ferjunni Akranesi.

Eins og fram hefur komið voru samflokksmenn Jóns, Páll Magnússon þingmaður og Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Eyjum afar ósáttir við úrskurð Samgöngustofu þess efnis að ekki væri vert að gefa leyfi fyrir siglingum ferjunnar Akranes til Eyja nú um þessa helgi vegna öryggissjónarmiða. Samgönguráðuneytið gekk gegn þeim úrskurði, veitti leyfið og fagnaði Elliði og sagði sigur fyrir Eyjamenn. Og heimildin þýddi að hátt í þúsund miðar verði seldir aukalega á hátíðina.

Vísi tókst ekki að ná tali af Jóni nú í morgun en ræddi við aðstoðarmann hans Ólaf E. Jóhannsson, sem reyndar var staddur í Elliðaám við veiðar, en þar starfaði Ólafur um árabil sem veiðivörður. Hann segir þetta passa.

„Foringinn er kominn til Eyja. Hann átti ferð klukkan tíu. Það var löngu planað að hann færi og hann var búinn að panta flug, en afbókaði það og ákvað að prófa þennan ferðamáta. Hvort þetta væri ekki öruggt,“ segir Ólafur.


Tengdar fréttir

Segir niðurstöðuna sigur fyrir Vestmannaeyjar

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að heimild til siglinga milli lands og Eyja þýði að hátt í þúsund miðar til viðbótar verði seldir á Þjóðhátíð. Enn hefur þó ekki fengist úr því skorið hvað verður gert í málum farþega sem áttu pantað far með ferjunni til Akraness um helgina.

Akranes fær að sigla á Þjóðhátíð

Samgönguráðuneytið telur Samgöngustofu ekki hafa sýnt fram á að aðstæður til siglinga milli Vestmannaeyja og Landeyjahafnar séu aðrar en á milli Reykjavíkur og Akraness.

Sannfærður um að Akranes sigli til Eyja

Ekki tókst að taka ákvörðun um hvort báturinn Akranes megi sigla milli lands og Eyja í samgönguráðuneytinu í gær. Hún verður tekin í dag. Bæjarstjórinn segist ekki geta setið undir óvönduðum vinnubrögðum Samgöngustofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×