Fótbolti

Stuðningsmenn PSG fjölmenntu og tóku vel á móti Neymar | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar er mættur.
Neymar er mættur. Vísir/EPA
Neymar var í dag kynntur sem nýr leikmaður franska liðsins Paris Saint Germain og hélt um leið sin fyrsta blaðamannafund og fór í sína fyrstu myndatöku í búningi PSG.

PSG keypt Neymar frá Barcelona fyrir metupphæð en hann er langdýrasti knattspyrnumaður sögunnar.

Stuðningsmenn Paris Saint Germain voru mjög spenntir að sjá nýju stórstjörnu liðsins og fjölmenntu á svæðið.

Það má bóka það að áhugi liðsins verður enn meiri en áður með brasilíska framherjann í liðinu en um leið eykst pressan á að fara alla leið í Meistaradeildinni.

Hér fyrir neðan má sjá myndir frá kynningunni á Neymar frá Twitter-síðu Paris Saint Germain.
























Fleiri fréttir

Sjá meira


×