Lífið

Baby Spice kom eldheitum Spice Girls aðdáendum á óvart

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Þessi trúði ekki sínum eigin augum þegar átrúnaðargoðið birtist fyrir framan hana. Í pastelbleiku, eins og hennar er von og vísa.
Þessi trúði ekki sínum eigin augum þegar átrúnaðargoðið birtist fyrir framan hana. Í pastelbleiku, eins og hennar er von og vísa. Skjáskot/Youtube
Það eru eflaust ófáir sem dreymir um að hitta Victoriu Beckham, Melanie C, Melanie B, Emmu Bunton og Geri Halliwell sem voru í stelpusveitinni Spice Girls á tíunda áratug síðustu aldar.

Buzzfeed lét draum nokkurra þeirra rætast á dögunum. Fjórir ofur aðdáendur sveitarinnar voru blekktir og þeim sagt að þau ættu að horfa á gömul tónlistarmyndbönd Spice Girls og bregðast við þeim.

Það sem þau vissu ekki var að Emma Bunton, sem var þekkt sem Baby Spice eða Barnakryddið upp á íslensku, var á bak við tjöldin og kom hún aðdáendum sínum skemmtilega á óvart.

Myndbandið má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×