Sport

Sjáðu fyrstu stikluna úr Hard Knocks

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Það styttist í nýtt tímabil í NFL-deildinni og heimildaþættirnir Hard Knocks verða á sínum stað en þar er fylgst með einu NFL-liði í æfingabúðum fyrir nýja tímabilið.

Í þetta sinn verður fylgst með liði Tampa Bay Buccaneers en stiklu úr þáttunum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Jameis Winston er leikstjórnandi Buccaneers og þykir einn sá allra besti ungi leikmaður deildarinnar í sinni stöðu. Liðið hefur þar að auki náð að byggja upp öflugan leikmannahóp, bæði í sókn og vörn.

Liðið vann níu leiki af sextán á síðustu leiktíð en rétt svo missti af sæti í úrslitakeppninni.

Nýtt tímabil hefst þann 7. september en Hard Knocks þættirnir verða sýndir á Stöð 2 Sport í aðdraganda þess.

Sú nýbreytni verður hjá Stöð 2 Sport í ár að tveir NFL-leikir verða sýndir í beinni útsendingu hvern sunnudag í vetur, í stað eins. Allir leikir úrslitakeppninnar verða sömuleiðis sýndir.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×