Erlent

Hin­rik prins segir eigin­konu sína hafa haft sig að fífli

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Hinrik prins telur sig hafa verið í skugga eiginkonu sinnar.
Hinrik prins telur sig hafa verið í skugga eiginkonu sinnar. Visir/Getty

Hinrik prins er harður á því að vilja ekki láta grafa sig við hlið eiginkonu sinnar, Margrétar Þórhildar Danadrottningar, í Hróarskeldu. Hann ítrekar þetta í viðtali við vikublaðið Se og Hør - viðtali sem hefur valdið töluverðum usla í Danmörku í dag.



Þar fer hann hörðum orðum um eiginkonu sína. „Hún hefur haft mig að fífli. Ég giftist ekki drottningunni til að láta grafa mig í Hróarskeldu,“ segir hinn pirraði prins í fyrsta viðtalinu eftir að í ljós kom í síðustu viku að hann myndi rjúfa aldagamla hefð um að konungshjón Danmerkur hvíli hlið við hlið.



Lene Balleby, upplýsingafulltrúi drottningar, sagði í einkaviðtali við Berlingske að það sé ekkert leyndarmál að prinsinn hafi verið ósáttur við stöðu sína og þann titil sem hann ber innan konungsfjölskyldunnar í mörg ár. Óánægja hans hefur farið vaxandi á undanförnum árum.



Sjá einnig: Hinrik Prins vill ekki verða jarðsettur á sama stað og Margrét Þórhildur

„Fyrir prinsinn er ákvörðun hans um að liggja ekki hinstu hvílu við hlið drottningar eðlilegt framhald þeirrar stöðu sem honum hefur verið úthlutað og að ekki hefur verið orðið við óskum hans um breytingu þar á. Prinsinn er einfaldlega þeirrar skoðunar að hann eigi ekki að vera við hlið drottningar í dauðanum þegar honum var meinað það í lífinu,” sagði Balleby í viðtali við Berlingske.



Hinrik hnykkir á þessu í samtali við Se og Hør. „Eiginkona mín hefur ekki sýnt mér þá virðingu sem kona ætti að sýna eiginmanni sínum.“ segir hann.



„Eiginkona mín hefur tekið það skýrt fram að hún vilji vera drottning og það get ég sætt mig við. En sem manneskja ætti hún að vita að þegar karl og kona eru gift þá eru þau jafningar,“ bætir prinsinn við.



Hinrik undirstrikar í samtali við vikublaðið að þrátt fyrir þessi ósætti elski þau Margrét hvort annað og að þau muni verja næstu tveimur vikum saman í Frakklandi. Enn er óvíst hvar Hinriki verður fundinn grafreitur að honum látnum.



Hinrik prins fæddist í Talence í Frakklandi árið 1934 og er hann því 83 ára gamall. Hann og Margrét Þórhildur drottning gengu í hjónaband árið 1967.



Danska krúnan hefur ekki viljað tjá sig um viðtal Hinriks í Se og Hør, sem má nálgast hér.


Tengdar fréttir



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×