Bíó og sjónvarp

Leikarinn sem glæddi Godzillu lífi er látinn

Erna Agnes Sigurgeirsdóttir skrifar
Haruo Nakajima ásamt minni útgáfu af Godzillu.
Haruo Nakajima ásamt minni útgáfu af Godzillu. Vísir/Getty
Godzillu þekkja flestir enda goðsagnakennd kvikmyndapersóna sem hefur haldið fólki spenntu fyrir framan skjáinn síðan árið 1954. Japanski leikarinn Haruo Nakajima átti leiksigur í þeim kvikmyndum en hann lék risaeðluna ofvöxnu til árins 1974. Hann er nú látinn 88 ára að aldri af völdum lungnabólgu. Dansk Radio greinir frá.

Nakajima klæddist búningi sem var yfir hundrað kíló og glæddi risaeðluna lífi. Sjálfur sagði Nakajima að það hefði verð ansi heitt inn í búningnum eða um 60 gráður. Það má því teljast afrek að Nakajima hafi tekist að leika risaeðluna í öll þessi ár.

Risaeðlan kom, eins og áður sagði, fyrst fram á sjónarsviðið árið 1954 og átti að tákna þá hættu sem heiminum stafaði af kjarnorkuvopnum. Risaeðlan átti að hafa orðið til fyrir tilstilli kjarnorkusprengju sem sprakk í Kyrrahafinu. Godzilla vitnaði því í atburði áranna áður þegar Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengju á japönsku eyjarnar Hiroshima og Nagasaki.

Nakajima lék einnig í kvikmyndinni Seven Samurai.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×