Formúla 1

Vettel: Ég var mjög upptekinn alla keppnina

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel frussar freyðivíninu eftir að hafa landað fyrsta sætinu í Ungverjalandi.
Vettel frussar freyðivíninu eftir að hafa landað fyrsta sætinu í Ungverjalandi. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari vann sína fjórðu keppni á tímabilinu í dag. Hann jók forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna upp í 14 stig. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Ég er í skýunum. Ég var mjög upptekinn alla keppnina. Stýrið skekktist snemma og það ágerðist svo bara. Ég þurfti að passa mig á köntunum. Ég var ekki að gera Kimi [Raikkonen] neinn greiða, hann hefði geta farið hraðar,“ sagði Vettel á verðlaunapallinum.

„Það er frábær stuðningur hérna en ég gat því miður ekki skilað fyrsta sætinu til allra finnsku áhorfendanna hérna. Ökumaðurinn á undan þér þarf að gera risastór mistök og sérstaklega ef hann er liðsfélagi þinn ef þú átt að komast fram úr þér,“ sagði Kimi Raikkonen á verðlaunapallinum, hann varð annar á Ferrari bílnum í dag.

„Ég var að glíma við hægfara bíla og ég verð að þakka Lewis [Hamilton] fyrir íþróttamannslega hegðun undir lokin. Ég vil þakka liðinu fyrir frábæra helgi,“ sagði Valtteri Bottas á verðlaunapallinum, hann varð þriðji á Mercedes bílnum.

„Þetta var mikilvæg keppni. Það sem skiptir mestu að við þurftum að hafa fyrir þessu og okkur tókst að standast áhlaupið,“ sagði Sergio Marchionne, forseti Ferrari.

„Við getum tapað titli vegna þess að Lewis hleypti Bottas fram úr í lokin. Þessi andi hefur hins vegar skilað sér og við höfum unnið þrisvar á síðustu þremur árum með þessa stefnu. Ég tek hatt minn ofan fyrir báðum ökumönnum okkar, þeir heiðruðu samkomulagið sem gert var,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Ég veit ekki af hverju Ferrari menn voru svona hægir. Ég festist fyrir aftan Valtteri en ég gat ekki sagt liðinu að ég væri hraðari vegna bilunar í talstöðinni. Ég fékk þó tækifærið og reyndi hvað ég gat en það gekk ekki og ég er maður orða minna og ég gaf honum sætið aftur,“ sagði Lewis Hamilton sem varð fjórði í dag.


Tengdar fréttir

Daniel Ricciardo fljótastur á föstudegi

Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir ungverska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Uppfærslurnar á Red Bull bílnum greinilega að virka vel.

Sebastian Vettel vann í Ungverjalandi

Sebastian Vettel á Ferrari kom fyrstur í mark í ungverska Formúlu 1 kappakstrinum. Kimi Raikkonen varð annar á Ferrari og Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji.

Sebastian Vettel á ráspól í Ungverjalandi

Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur í tímatökunni fyrir Formúlu 1 kappaksturinn sem fram fer í Ungverjalandi á morgun. Kimi Raikkonen á Ferrari varð annar og Valtteri Bottas á Mercedes þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×