Formúla 1

Vergne vann í Montreal en Lucas di Grassi meistari

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lucas di Grassi varð meistari ökumanna í Formúlu E.
Lucas di Grassi varð meistari ökumanna í Formúlu E. Vísir/Getty
Jean-Eric Vergne á Techeetah bílnum vann sína fyrstu keppni í Formúlu E í dag í Montreal, Kanada. Lucas di Grassi varð meistari ökumanna í mótaröðinni.

Vergne tók fram úr Sam Bird strax í ræsingunni og náði þar með öðru sæti. Hann átti svo meiri orku eftir undir lokin eða á 29. hring, þá tók hann dýfu á Felix Rosenqvist. Vergne gat svo varist tilraunum Rosenqvist til að reyna að næla í fyrsta sætið.

Renault e.Dams liðið vann sinn þriðja titil í keppni bílasmiða í Formúlu E. Liðið hefur unnið alla titla bílasmiða í mótaröðinni.

Aftar í goggunarröðinni kom di Grassi sem var með 18 stiga forskot á Sebastien Buemi fyrir keppnina. Di Grassi dugði að koma heim í sjöunda sæti í dag af því að Buemi náði ekki í nein stig í dag.

Buemi ræsti 13. af stað en lenti í aftanákeyrslu í fyrstu beygju. Antonio Felix da Costa skall á Buemi. Liðið hans skipaði Buemi að koma inn á þjónustusvæðið eftir áreksturinn til að fjarlægja hlíf yfir dekkinu sem hafði losnað. Honum tókst þó að fjarlægja hana og fyrir misskilning fór hann inn á þjónustusvæðið.

Eftir það var á brattan að sækja fyrir Buemi sem endaði í 11. sæti. Þrátt fyrir sex sigra og algera drottnun í upphafi tímabils, tókst Buemi ekki að sækja annan titil sinn.


Tengdar fréttir

Vettel: Ég var mjög upptekinn alla keppnina

Sebastian Vettel á Ferrari vann sína fjórðu keppni á tímabilinu í dag. Hann jók forskot sitt í heimsmeistarakeppni ökumanna upp í 14 stig. Hver sagði hvað eftir keppnina?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×