Fótbolti

Tvær efstu þjóðirnar á FIFA-listanum duttu báðar út á EM í dag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Dönsku stelpurnar stöðvuðu tveggja áratuga sigurgöngu Þýskalands á EM kvenna.
Dönsku stelpurnar stöðvuðu tveggja áratuga sigurgöngu Þýskalands á EM kvenna. Vísir/EPA
Þýskaland og Frakkland komust ekki í undanúrslitin á EM kvenna í fótbolta en átta liða úrslit EM í Hollandi fóru fram um helgina.  Það hafa verið óvænt úrslit á Evrópumótinu í ár.

Þýskaland og Frakkland voru með tvö bestu kvennalið Evrópu samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA. Þýsku stelpurnar duttu út á móti Dönum og Englendingar slógu Frakkana út.

Þýska liðið var búið að vinna síðustu sex Evrópumót og verið í undanúrslitum á öllum Evrópumótum frá og með 1989.

Frakkarnir voru að detta út í átta liða úrslitum á þriðja Evrópumótinu í röð en franska liðið hefur aldrei komist í undanúrslit á EM.

Aðeins ein þjóð inn á topp fimm á listanum komst í undanúrslitin en það eru Englendingar sem voru þriðja hæsta Evrópuliðið á listanum.

Auk Þýskalands og Frakklands þá eru bæði Svíþjóð og Noregur úr leik en landslið þeirra voru bæði inn á topp fimm.

Austurríki er komið í undanúrslit á sínu fyrsta stórmóti en liðið er með fjórtánda besta knattspyrnulandslið Evrópu í kvennaflokki samkvæmt styrkleikalista FIFA.

Bestu þjóðir Evrópu samkvæmt styrkleikalista FIFA:

1. Þýskaland - Úr leik á EM 2017

2. Frakkland - Úr leik

3. England - Í undanúrslitum á EM 2017

4. Svíþjóð - Úr leik

5. Noregur - Úr leik

6. Holland - Í undanúrslitum

7. Spánn - Úr leik

8. Danmörk - Í undanúrslitum

9. Sviss - Úr leik

10. Ítalía - Úr leik

11. Ísland - Úr leik

12. Skotland - Úr leik

13. Belgía - Úr leik

14. Austurríki - Í undanúrslitum

15. Rússland - Úr leik




Fleiri fréttir

Sjá meira


×