Fótbolti

Sara Björk stendur nú ein eftir

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir talar hér við fjölskyldu og vini sína í stúkunni eftir leikinn á móti Frakklandi. Hún setti met í þessum leik.
Sara Björk Gunnarsdóttir talar hér við fjölskyldu og vini sína í stúkunni eftir leikinn á móti Frakklandi. Hún setti met í þessum leik. Vísir/Vilhelm
Þegar að flautað var til leiksloka hjá stelpunum okkar á móti Frakklandi í Tilburg í fyrrakvöld stóð fyrirliðinn Sara Björk Gunnarsdóttir uppi sem eini íslenski leikmaðurinn frá upphafi sem hefur spilað alla leiki kvennalandsliðsins á stórmóti. Sara hefur enn fremur byrjað alla átta leiki liðsins á stórmótum frá því fyrst var spilað við Frakkland á EM 2009.

Sara og herbergisfélagi hennar, Rakel Hönnudóttir, voru þær einu í hópnum sem höfðu komið við sögu í öllum leikjum kvennalandsliðsins á stórmótum. Rakel kom inn á sem varamaður í öllum leikjunum í Finnlandi árið 2009 og spilaði í heildina 46 mínútur en Sara Björk, sem var þá 18 ára, byrjaði alla leikina.

Rakel var komin í mun stærra hlutverk á EM 2013 í Svíþjóð þar sem liðið gerði sér lítið fyrir og komst í átta liða úrslitin áður en það féll úr leik með 4-0 tapi fyrir Svíþjóð. Rakel spilaði hverja einustu mínútu á því móti og á nú 406 mínútur að baki fyrir landsliðið á stórmóti. Hún er í níunda sæti á listanum yfir flestar mínútur spilaðar en Rakel er að jafna sig á meiðslum og var því ekki notuð á móti Frakklandi.

Sara Björk komst í efsta sætið yfir flestar mínútur spilaðar á stórmóti eftir að spila allan leikinn á móti Frakklandi á þriðjudaginn. Hún hefur í heildina spilað 675 mínútur og fór upp fyrir fyrrverandi fyrirliðann Katrínu Jónsdóttur í Tilburg. Sara var tekin út af einu sinni á EM 2009 og einu sinni á EM 2013 en hefur annars alltaf spilað 90 mínútur.

Sara Björk Gunnarsdóttir í leik á móti Frökkum á EM 2009.Vísir/AFP
Nýliði verður leiðtogi

Hafnfirðingurinn var efnilegur nýliði á stórmóti, aðeins 18 ára, þegar hún spilaði fyrst fyrir Ísland á stórmóti en er núna fyrirliði liðsins og besti leikmaður þess. Hún stendur fremst íslenskra knattspyrnukvenna en hún spilar fyrir WfL Wolfsburg sem er eitt besta lið í heimi og þá var hún tilnefnd á meðal bestu knattspyrnukvenna Evrópu fyrr á árinu.

Svona met er þó eitthvað sem hún er lítið að spá í: „Það nefndi þetta einhver við mig eftir leikinn í gær og ég sagði Söru frá þessu. Hún var bara „Ha?“ Við erum ekkert að pæla í þessu,“ sagði Rakel Hönnudóttir við Fréttablaðið á æfingu liðsins í gær.

Söru fannst tilfinningin eftir leikinn á móti Frakklandi núna en fyrir átta árum allt önnur: „Þetta er allt annað en fyrir átta árum. Maður var svekktur eftir lélega frammistöðu gegn Frakklandi þegar við mættum þeim í Finnlandi en nú labba ég af vellinum stolt. Ég horfði stolt upp í stúku og á leikmennina ótrúlega stolt,“ sagði Sara Björk.

Sara Björk Gunnarsdóttir þakkar íslensku áhorfendunum fyrir stuðninginn eftir Frakkaleikinn.Vísir/Vilhelm
Flestir leikir fyrir Ísland á EM kvenna

1. Sara Björk Gunnarsdóttir      8

2. Dóra María Lárusdóttir      7

2. Katrín Jónsdóttir      7

2. Margrét Lára Viðarsdóttir      7

2. Rakel Hönnudóttir      7

6. Fanndís Friðriksdóttir      6

6. Guðbjörg Gunnarsdóttir      6

6. Hólmfríður Magnúsdóttir      6

6. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir      6

10. Dagný Brynjarsdóttir      5

10. Hallbera Guðný Gísladóttir      5

10. Harpa Þorsteinsdóttir      5

10. Sif Atladóttir      5

14. Glódís Perla Viggósdóttir      4

14. Katrín Ómarsdóttir      4

Flestar mínútur spilaðar fyrir Ísland á EM kvenna

1. Sara Björk Gunnarsdóttir      675

2. Katrín Jónsdóttir      621

3. Dóra María Lárusdóttir      611

4. Margrét Lára Viðarsdóttir      590

5. Guðbjörg Gunnarsdóttir      540

6. Hólmfríður Magnúsdóttir      520

7. Hallbera Guðný Gísladóttir      450

8. Sif Atladóttir      422

9. Rakel Hönnudóttir      406

10. Dagný Brynjarsdóttir      397

11. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir      394

12. Fanndís Friðriksdóttir      299

13. Edda Garðarsdóttir      270

13. Guðrún Sóley Gunnarsdóttir      270

15. Glódís Perla Viggósdóttir      217




Fleiri fréttir

Sjá meira


×