Draumabyrjun Valsmanna en vonin dó á tveimur martraðarmínútum í seinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Valsmenn þurfa að standa í lappirnar í dag.
Valsmenn þurfa að standa í lappirnar í dag. vísir/eyþór
Valsmenn eru úr leik í Evrópudeildinni eftir 3-2 tap í kvöld á móti slóvenska liðinu NK Domzale í seinni leik liðanna í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar sem fór fram út í Slóveníu.

Domzale vann fyrri leikinn 2-1 á Hlíðarenda og þar með 5-3 samanlagt. Domzale tryggði sér með þessu leiki á móti þýska liðinu Freiburg í 3. umferðinni.

Þetta byrjaði samt mjög vel fyrir Valsmenn því Guðjón Pétur Lýðsson kom liðinu yfir með marki úr vítaspyrnu strax á þriðju mínútu sem Andri Adolphsson fiskaði.

Ivan Firer jafnaði metin á 25. mínútu með marki víti sem dæmt var á Rasmus Steenberg Christiansen.

Nicolas Bögild kom Valsliðinu hinsvegar aftur yfir rétt fyrir hálfleik eftir stoðsendingu frá umræddum Andra Adolphssyni.

Staðan var 2-1 í hálfleik fyrir Val og liðin því alveg jöfn þegar 45 mínútur voru eftir.

Von Valsmanna dó hinsvegar snögglega í seinni hálfleiknum þegar Slóvenarnir skoruðu tvö mörk með tveggja mínútna millibili. Það fyrra skoraði Jure Balkovec á 69. mínútu en það seinna Senijad Ibricic á 71. mínútu.

Valsmenn hefði nægt að skora eitt mark í bæði stöðunni 2-1 og 2-2 en nú þurftu þeir að skora tvö mörk.

Valsmenn eru þar með úr leik bæði í Evrópukeppninni og bikarkeppninni og geta því farið að einbeita sér að deildarkeppninni þar sem þeir sitja á toppi Pepsi-deildar karla þegar mótið er hálfnað.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira