„Stór varasamur vegur fyrir stóra og breiða bíla“ Gissur Sigurðsson skrifar 20. júlí 2017 14:44 Rúta Time Tours valt af veginum sem staðið hefur til að lagfæra.
Vegagerðin undribýr nú af kappi uppbyggingu á vegarkaflanum á Þingvöllum þar sem hópferðabíll fullur af farþegum valt út af í gær. Auk þess að vera of mjót ber hann ekki lengur þunga stærstu hópferðabílanna og kantarnir eru orðnir mjög varasamir. Þetta er vegkaflinn frá þjónustumiðstöðinni í átt að afleggjaranum upp á nýju Lyngdalsheiðina, sem lagður var í tengslum við þjóðhátíðarhöldin árið 1974 og ber hvergi nærri lengur þá umferð sem nú er orðin um hann. „Það er nú þannig að nú erum við að vinna hörðum höndum að því að bjóða þetta verk út núna í haust þannig að þessi kafli verður breikkaður, byggður upp og gerður öruggari með hliðarfláum,“ segir Óskar Örn Jónsson, deildarstjóri framkvæmdasviðs Vegagerðarinnar. Aðspurður hvenær sú framkvæmd geti hafist segir hann að Vegagerðin sé nú komin með grænt ljós á framkvæmdina frá Þingvallanefnd og hönnuðir séu nú að teikna veginn. „Vonandi náum við að bjóða út þennan kafla fyrri hlutann nú í haust og jafnvel seinni kaflann skömmu síðar og jafnvel um leið.“ Ef allt gengur að óskum yrði verkinu lokið eftir rúmt ár eða svo.En ef maður ekur þennan veg þá finnur maður að hann er orðinn svona missiginn. Eru þessar stærstu rútur ekki orðnar of þungar fyrir burðarþol veganna? „Jú, við erum með öxulþungatakmörkun á þessum veg átta tonn. Þessar stærstu rútur fara yfir það, sérstaklega ef þær eru með farangursrýmið líka hlaðið,“ segir Óskar.En stærstu rúturnar fara þarna samt um, eykur það þá ekki hættuna á að vegkantar gefi sig? „Jú, þetta er bara stór varasamur vegur fyrir stóra og breiða bíla.“
Mest lesið Getur ekki lagt fram trygginguna og biðlar til dómstóla um miskunn Erlent „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ Innlent „Þetta er að verða komið gott“ Innlent „Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“ Erlent Stöðug virkni í nótt Innlent Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Innlent Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Innlent Ísland meðal örfárra ríkja sem standast viðmið WHO um loftgæði Erlent Jakob Reynir Aftur reynir aftur Innlent Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Innlent Fleiri fréttir Hjón og sambúðarfólk leitar í talsvert meira mæli til umboðsmanns skuldara Bein útsending: Málþing um framtíð rammaáætlunar Stöðug virkni í nótt „Við verðum að bregðast við þegar glugginn er opinn“ „Þetta er að verða komið gott“ Bankasýslan kom af fjöllum þegar tilkynnt var um kaupin Lýsir yfir vonbrigðum og krefst frestunar aðalfundar Árekstur við Kaplakrika Eldgosið hagi sér öðruvísi og gæti varað lengur Jakob Reynir Aftur reynir aftur Bankastjóri segir það hennar hlutverk að reka Landsbankann Enn mikið sjónarspil á gosstöðvunum Tveggja ára fangelsi fyrir hnífaárás vegna lélegs kókaíns Hvorki sakborningur né fórnarlamb kannast við skotárásina Kvöldfréttir Stöðvar 2 Stefán Ingimar neitar að koma til landsins Virkni gossins enn stöðug og hætta enn talin mikil Tekur ekki þátt í að selja hlut í Landsbankanum Endurskoða aðgangstakmarkanir á morgun Meðmælabréf kennaranna ekki nóg fyrir skólastjórann Lítil stemning fyrir rafrænni undirritun Ríkið reynt að hafa þinglýstar jarðir af bændum með valdi Fær engar slysabætur eftir að hafa ekið réttindalaus og „frosið“ á fjórhjólinu Íslendingurinn var handtekinn í Baltimore Foreldrar megi ekki vera vondir við sjálfa sig eftir stórt áfall Hraunið á um 330 metra í Suðurstrandarveg Svartsengi rýmt vegna gasmengunar Barmur hrauntjarnar við það að bresta og mikil mengun í Svartsengi Haldlögðu mikið magn skotvopna á höfuðborgarsvæðinu Segir Ómar hafa hótað pari málsókn vegna viðtals Sjá meira