Körfubolti

Fjör á fyrstu æfingu íslenska karlalandsliðsins fyrir Eurobasket | Myndir

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Ágúst Nathanaelsson tekur hér á Hauki Helga Pálssyni.
Ragnar Ágúst Nathanaelsson tekur hér á Hauki Helga Pálssyni. Vísir/Andri Marinó
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hóf í kvöld æfingar fyrir Evrópukeppnina sem hefst í lok ágúst.

Fyrsta æfingin var í Ásgarði í Garðabæ en strákarnir eru nú reynslunni ríkari enda á leiðinni á sitt annað Evrópumót í röð.

Kanadamaðurinn Craig Pedersen er búinn að velja 23 manna æfingahóp en aðeins tólf þeirra verða með í lokahópnum í Helsinki þar sem Ísland mætir Grikklandi, Póllandi, Slóveníu, Finnlandi og Frakklandi.

Íslenska liðið mun spila æfingaleiki við Belgíu hér á landi í næstu viku en eins taka þátt í æfingamótum erlendis fram að Evrópukeppni.

Andri Marinó Karlsson, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, var á æfingunni í Ásgarði í kvöld og tók þessar skemmtilegu myndir hér fyrir neðan.

Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó
Vísir/Andri Marinó



Fleiri fréttir

Sjá meira


×