Fótbolti

Arnar Bill: Allir taka jafnmikla ábyrgð

Tómas Þór Þórðarson í Ermelo skrifar
Arnar Bill Gunnarsson, fræðslustjóri KSÍ, er einn af þremur njósnurum íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta sem mætir Sviss í öðrum leik sínum á EM 2017 á morgun.

Verkefni Arnars fyrir mótið var að taka út svissneska liðið þannig það er ekkert sem hann veit ekki um mótherja morgundagsins. Vinnan sem var lögð í að taka út mótherjana var mikil.

„Við erum búin að vera að kíkja á svissneska liðið síðan við drógumst með því í riði. Ég er búinn að þvælast um Evrópu að elta þær. Á meðan við kepptum á Algarve-mótinu kepptu þær á móti á Kýpur og unnu það,“ segir Arnar Bill.

„Ég sá leiki á því móti, svo sá ég þær í Sviss og svo eigum við auðvitað upptökur af öllum leikjunum þeirra. Ég er búinn að sjá svona fimm eða sex leiki með eigin augum og svo allt að átta leiki á upptöku.“

Austurríki vann nokkuð óvæntan sigur á Sviss í fyrstu umferðinni. Svissneska liðið var eitt það heitasta í Evrópu fyrir nokkrum árum og vann þá stelpurnar okkar þrisvar sinnum.

„Þetta er svo rosalega jafnt. Austurríki er á þvílíkri uppleið eins og Sviss var fyrir tveimur til þremur árum, mjög erfitt að mæta þeim. Sviss er orðið stöðugra lið á meðan stuðið og stemmarinn er með austurríska liðinu,“ segir Arnar en hvernig fótbolta vill Sviss spila?

„Sviss vill helst vera með boltann. Þær leita mikið að sömu leikmönnunum; Bachmann og Dickermann. Þær vilja sprengja leikinn svolítið upp. Þetta er lið stútfullt af góðum leikmönnum sem spila með frábærum liðum. “

Starf Arnars er að skila ítarlegum skýrslum um leikfræði Sviss og leikmenn liðsins. Það fer því ansi mikil vinna hjá honum í þennan eina leik.

„Ég njósnaði líka fyrir karlaliðið á EM í fyrra. Þar tók ég út austurríska liðið og við unnum þann leik en það sem ég skilaði hjálpaði okkur ekkert gríðarlega mikið. Við vorum í vörn í 45 mínútur. Það sem ég kem með nýtist leikmönnum vel en leikfræðilega séð eru það leikmennirnir sem klára verkefið inn á vellinum,“ segir Arnar en líður honum betur eða verr eftir svona leik þar sem svo mikil vinna fór í þetta hjá honum?

„Það eru bara allir í þessu saman og allir taka jafnmikla ábyrgð á öllu,“ segir Arnar Bill Gunnarsson.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á Facebook og Twitter.


Tengdar fréttir

Markahrókur í miðverðinum hjá íslenska landsliðinu

Glódís Perla Viggósdóttir segir íslenska kvennalandsliðið betra núna en þegar það mætti Sviss síðast. Það er líka eins gott því síðustu leikir gegn svissneska liðinu hafa ekki farið vel. Íslandi gengur illa að skora en sjálf var Glódís markahrókur á árum áður.

EM bara Símamótið á sterum

Agla María Albertsdóttir er aðeins sautján ára en hefur á afar skömmum tíma stimplað sig inn í landslið Íslands í knattspyrnu. Hún spilaði sinn fyrsta A-landsleik í apríl og sinn fimmta í 1-0 tapinu fyrir Frakklandi á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×