Sænsku stelpurnar skutu Rússana aftur niður á jörðina

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Lotta Schelin fagnar marki sínu.
Lotta Schelin fagnar marki sínu. Vísir/Getty
Svíar fögnuðu sínum fyrsta sigri á EM kvenna í fótbolta í kvöld þegar sænska liðið vann sannfærandi 2-0 sigur á Rússum í fyrri leik dagsins í B-riðli.

Svíar gerðu markalaust jafntefli við Evrópumeistara Þýskalands í fyrsta leiknum sínum en stigu nú stórt skref að því að komast upp úr riðlinum og í átta liða úrslitin.

Rússneska liðið gat tryggt sér sæti í átta liða úrslitunum með sigri eftir 2-1 sigur á Ítölum í fyrsta leik en nú biður liðsins erfiður leikur á móti Þýskalandi í lokaumferðinni.

Markadrottningin og fyrirliðinn Lotta Schelin skoraði fyrra markið á 22. mínútu með skalla eftir aukaspyrnu Magdalena Eriksson. Þetta var 87. markið hennar fyrir sænska landsliðið. Markið lá í loftinu en mörkin urðu samt ekki fleiri fyrir hálfleik.

Stina Blackstenius bætti síðan við öðru marki á 51. mínútu en hún er 21 árs og tólf árum yngri en Lotta Schelin.



Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira