Golf

Rory blandar sér í baráttuna | Spieth byrjar vel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rory vippar úr sandinum í dag.
Rory vippar úr sandinum í dag. vísir/getty
Eftir ævintýralega lélega byrjun í gær er Norður-Írinn Rory McIlroy kominn í hóp efstu manna á Opna breska meistaramótinu.

McIlroy fékk fimm skolla á fyrstu sex holunum í gær en reif sig upp á seinni níu. Hann lék svo á tveimur höggum undir pari í dag og er á einu undir pari samtals. Hann er því rétt fyrir utan topp tíu.

Þrír kylfingar leiddu eftir gærdaginn á fimm höggum undir pari. Þeir Jordan Spieth, Brooks Koepka og Matt Kuchar. Kuchar hefur lokið leik í dag og fór daginn á einu höggi yfir pari.

Spieth er nýlagður af stað og fékk fugl á fyrstu holuna. Koepka fer að renna af stað. Hér má fylgjast með stöðu mála.

Mótið er í beinni á Golfstöðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×