Fótbolti

Stelpurnar héldu atkvæðagreiðslu og vildu allar kenninöfnin á treyjurnar sínar

Kolbeinn Tumi Daðason í Doetinchem skrifar
Freyr Alexandersson ræðir við leikmenn landsliðsins eftir 1-0 tapið gegn Frökkum í Tilburg.
Freyr Alexandersson ræðir við leikmenn landsliðsins eftir 1-0 tapið gegn Frökkum í Tilburg. Vísir/Vilhelm
Töluverð umræða hefur skapast á Íslandi um nöfn íslenskra landsliðsmanna og þá staðreynd að á keppnisbúningum kvennalandsliðsins eru þær með kenninöfnin á bakinu en ekki fornöfnin. Sitt sýnist hverjum um þá ákvörðun og hafa ýmsir lagt orð í belg.

Umræðan kemur reglulega upp hjá landsliðum Íslands í íþróttum. Leikmenn karlalandsliðsins bera kenninöfn sín á treyjunum að eigin ósk eins og fjallað var um á Vísi á sínum tíma.

Horfa til crossfit stjarnanna

Glódís Perla Viggósdóttir og Sif Atladóttir útskýrðu á fundi með blaðamönnum í dag að þetta hefði verið rætt fyrir mót og atkvæðagreiðsla farið fram.

„Síðustu tvær keppnir hafa verið með fornafninu en við kusum um þetta og ákváðum að vera með eftirnöfnin núna þar sem við erum sameinaðar undir „dóttir“,“ sagði Sif. 

Vísaði Sif til merkisins #dottir sem hefur verið áberandi á samfélagsmiðlum. Stelpurnar hafa verið duglegar að merkja færslur sínar með merkinu. Glódís útskýrði hvers vegna.

„Þetta kemur upprunalega úr crossfit-heiminum þar sem stelpurnar okkar þar fengu þetta nafn á sig,“ sagði Glódís. Vísar hún þar meðal annars til Katrínar Tönju Davíðsdóttur og Ragnheiðar Söru Sigmundsdóttur sem slegið hafa í gegn í crossfit auk Annie Mist.

„Þetta stendur fyrir að vera grjótharðar og ógeðslega flottar,“ sagði Glódís.

Jessen og Jensen sammála

„Okkur langaði að taka þetta með okkur inn í mótið. Þetta gefur okkur auka orku, þetta er svona íslenskt og er skemmtilegt.“

Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari skaut inn að allir 23 leikmenn landsliðsins hefðu greitt atkvæði í sömu átt, þ.e. að vera með eftirnöfn á treyjum sínum.

„Meira að segja Jessen og Jensen,“ sagði Freyr og fékk salinn til að hlæja. Átti hann þar við Elínu Mettu Jensen og Söndru Maríu Jessen sem bera ættarnöfn í stað þess að vera kenndar við föður eða móður sína.

„Svona erum við meira lið.“

Uppfært klukkan 17:25

Orðinu kenninafn, sem nær utan um föður-, móður og ættarnöfn, skipt inn fyrir orðið eftirnafn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×