Golf

Brotist inn hjá meistaranum á meðan hann var að spila á opna breska

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Henrik Stenson.
Henrik Stenson. Vísir/Getty
Svíinn Henrik Stenson vann opna breska meistaramótið í golfi í fyrra og hann er nú í miðri titilvörn sinni á Konunglega Birkdale golfvellinum í Southport.  

Opna breska meistaramótið hófst í gæt og kylfingarnir eru nú að spila annan hringinn á þessu árlega risamóti.

Svíinn hefur hinsvegar sent frá sér yfirlýsingu þar sem kom fram að hann var fórnarlamb innbrotsþjófa sem brutust inn í húsið þar sem hann býr í Liverpool á meðan mótinu stendur.

„Þegar ég kláraði hringinn minn á fimmtudaginn þá fékk að vita að innbrotsþjófar hefðu komist inn í húsið. Það er mjög sérstakt fyrir mig að fá að spila hér sem ríkjandi meistari fyrir fram þessa frábæra áhorfendur á Birkdale og ég ætla því ekki að láta þetta spilla fyrir mér,“ sagði í yfirlýsingu Henrik Stenson.

„Ég er mjög þakklátur fyrir það að fjölskyldan mín var ekki í húsinu þegar innbrotið fór fram,“ skrifaði Henrik Stenson og hélt svo áfram:

„Eins og margir vita þá skilaði ég Claret Jug bikarnum á mánudaginn og hann slapp því en innbrotsþjófarnir náðu hinsvegar fullt af verðmætum og öllum fötunum sem ég ætlaði að nota í vikunni,“ skrifaði Stenson.

Henrik Stenson spilaði fyrstu átján holurnar á einu höggi undir pari en er nú á fyrri níu á öðrum hringnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×