Fótbolti

Guðni forseti tók sjálfu með „dökkbláa teyminu“

Kolbeinn Tumi Daðason í Doetinchem skrifar
Á myndinni má sjá þau (efri röð frá vinstri) Þorvald Ingimundarson, starfsmann KSÍ, Margréti Ákadóttur liðsstjóra, Óskar Örn Guðbrandsson fjölmiðlafulltrúa, Ásmund Haraldsson aðstoðarlandsliðsþjálfara, Arnar Sigurðsson lækni, Víði Reynisson öryggisfulltrúa auk þeirra Ragnhildar Skúladóttur landsliðsnefndarkonu og Guðrúnu Ingu Sívertsen, varaformann KSÍ.
Á myndinni má sjá þau (efri röð frá vinstri) Þorvald Ingimundarson, starfsmann KSÍ, Margréti Ákadóttur liðsstjóra, Óskar Örn Guðbrandsson fjölmiðlafulltrúa, Ásmund Haraldsson aðstoðarlandsliðsþjálfara, Arnar Sigurðsson lækni, Víði Reynisson öryggisfulltrúa auk þeirra Ragnhildar Skúladóttur landsliðsnefndarkonu og Guðrúnu Ingu Sívertsen, varaformann KSÍ. Forseti Íslands
Guðni Th. Jóhannesson heimsótti kvennalandsliðið á hótel þess í Ermelo í Hollandi í vikunni. Þar ræddi hann við stelpurnar, fékk þær til að skella upp úr og var raunar skammaður af einum leikmanni eins og fjallað var um á Vísi. Ástæðan var sú að leikmanninum, Fanndísi Friðriksdóttur, þótti forsetinn mæta of seint.

Nú er stórleikur framundan hjá stelpunum okkar á Evrópumótinu í knattspyrnu. Fyrr í vikunni fékk ég að hitta þær á hótelinu þeirra í Hollandi og kynntist þá þeirri samheldni, ákveðni, bjartsýni og fagmennsku sem einkennir hópinn,“ segir Guðni forseti í færslu á Facebook.

„Allir standa saman, allir læra af mótlæti, allir staðráðnir í að gera alltaf betur. Og allir hafa hlutverk, allir eru virtir. Læt fylgja hér sjálfu með „dökkbláa teyminu“, hluta fólksins sem sér um að landsliðið geti einbeitt sér að æfingum og leikjum. Áfram Ísland!“

Guðni var í vðitali í Bakaríinu á Bylgjunni í morgun en hann ætlar með fjölskylduna á leik dagsins.

Í dökkbláa teyminu er fólkið á bak við tjöldin en á myndinni má sjá þau (efri röð frá vinstri) Þorvald Ingimundarson, starfsmann KSÍ, Margréti Ákadóttur liðsstjóra, Óskar Örn Guðbrandsson fjölmiðlafulltrúa, Ásmund Haraldsson aðstoðarlandsliðsþjálfara, Arnar Sigurðsson lækni, Víði Reynisson öryggisfulltrúa auk þeirra Ragnhildar Skúladóttur landsliðsnefndarkonu og Guðrúnu Ingu Sívertsen, varaformann KSÍ.

Leikur Íslands og Sviss í dag hefst klukkan 16 að íslenskum tíma en stuðningsmenn munu fjölmenna á fan-zone í Doetinchem fyrir leik. Heimildir fréttastofu herma að forsetinn ætli að láta sjá sig þar með fjölskyldu sinni.

Ekki missa af neinu tengdu stelpunum okkar á EM 2017 í Hollandi. Íþróttadeild 365 er með öflugt teymi fréttamanna á mótinu og færir ykkur allar nýjustu fréttirnar af íslenska liðinu. Fylgdu okkur á Facebookog Twitter.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×