Golf

Sá yngsti og elsti á Íslandsmótinu í höggleik eru báðir komnir áfram

Elías Orri Njarðarson skrifar
Björgvin og Böðvar eftir keppnisdaginn í gær.
Björgvin og Böðvar eftir keppnisdaginn í gær. mynd/Keilir
Íslandsmótið í höggleik heldur áfram á Hvaleyrarvelli í Hafnafirði í dag eftir skemmtilegan keppnisdag í gær.

Nú þegar að mótið er hálfnað er búið að skera niður þátttakendafjölda niður um helming.

Athygli vakti að elsti keppandi mótsins, Björgvin Þorsteinsson frá Akureyri sem er að leika sitt 54. íslandsmót á ferlinum með þessu móti meðtöldu, sé kominn áfram.

Böðvar Bragi Pálsson úr GR er líka kominn áfram á mótinu en Böðvar er aðeins 14 ára gamall og er að leika á sínu fyrsta íslandsmóti og er þar með yngsti keppandinn á mótinu.

Gaman er að sjá það að bæði yngsta keppandann og þann elsta vera báða komna áfram en þegar að Böðvar fæddist hafði Björgvin leikið 39 íslandsmót í golfi.

Böðvar hefur leikið vel á mótinu og í gær lék hann á einu höggi undir pari og er sem stendur í 25. sæti. Björgvin lék á samtals 10 höggum yfir pari og var í 60.sæti þegar deginum lauk í gær.

Hægt er að fylgjast með stöðu mála á mótinu á twitter síðu Golfsambands Íslands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×