Fótbolti

Neymar mjög nálægt því að ganga í raðir PSG

Elías Orri Njarðarson skrifar
Óljóst er hvort Neymar verði áfram leikmaður Barcelona
Óljóst er hvort Neymar verði áfram leikmaður Barcelona visir/getty
Sky Sports greinir frá því að það séu mjög miklar líkur á að Neymar, sem leikur með Barcelona á Spáni sé að ganga til liðs við PSG í Frakklandi.

Heimildarmaður Sky á Spáni segir að það séu 90% líkur á því að Neymar fari til Frakklands og að það þurfi mikið til að hann haldi kyrru fyrir í Barcelona.

Talið er að Neymar sé orðinn þreyttur á því að vera í skugganum á Lionel Messi, liðsfélaga sínum. Neymar vill verða besti leikmaður í heimi og telur sig geta áorkað það hjá öðru félagi.

Forráðamenn PSG er taldir vera tilbúnir í að borga 222 milljónir evra fyrir leikmaninn, en þessi upphæð virkjar klásúlu í samningi Neymar sem gerir honum kleift að yfirgefa Barcelona.

Fróðlegt verður að fylgjast með gangi mála en Josep Bartomeu, forseti Barcelona hefur gefið það út að Neymar sé ekki til sölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×