Enski boltinn

Liverpool vann Asíubikarinn

Elías Orri Njarðarson skrifar
Leikmenn Liverpool að fagna marki í dag
Leikmenn Liverpool að fagna marki í dag visir/getty
Liverpool og Leicester City mættust í úrslitaleik um Asíubikarinn í Hong Kong í dag.

Islam Slimani kom Leicester yfir á 12. mínútu leiksins með góðu skallamarki framhjá Loris Karius markverði Liverpool.

Mohamed Salah jafnaði svo leikinn fyrir Liverpool með góðu marki á 20. mínútu og leikurinn í járnum.

Rétt fyrir hálfleik skoraði svo Philippe Coutinho og kom Liverpool yfir á 44. mínútu leiksins með frábæru skoti fyrir utan teig, óverjandi fyrir Kasper Schmeichel í marki Leicester. Liverpool fór því með forskotið inn í seinni hálfleikinn.

Síðari hálfleikur var skemmtilegur og bæði lið fengu færi til þess að skora en fleiri urðu mörkin ekki og 2-1 sigur Liverpool á Leicester raunin og Liverpool vinna því Asíubikarinn 2017.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×