Erlent

Ákærðir fyrir nauðgun og þrælahald

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Tveir menn á fimmtugsaldri eru hvorir um sig með tvöfalda nauðgunarákæru á hendur sér.
Tveir menn á fimmtugsaldri eru hvorir um sig með tvöfalda nauðgunarákæru á hendur sér. Vísir/getty
Tólf menn voru handteknir á þriðjudag í tengslum við meint mannrán og nauðgun á heimili í Southampton á Englandi að því er fram kemur á vef breska ríkisútvarpsins BBC.

Mennirnir voru handteknir eftir að grunur vaknaði um að þeir hefðu haldið 19 ára gamalli konu nauðugri á heimilinu dagana níunda til átjánda júlí.

Tveir menn á fimmtudagsaldri eru með tvöfalda nauðgunarákæru á hendur sér, hvor um sig en sá eldri, sem er 49 ára, er auk þess ákærður fyrir tvö brot á löggjöfinni um nútímaþrælahald.

Sex eru lausir úr haldi á meðan rannsókn stendur yfir en fjórum var sleppt án gruns um aðild að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×