Fótbolti

Tottenham sigraði PSG í Meistarabikarnum | Sjáðu stórbrotið mark Christian Eriksen

Elías Orri Njarðarson skrifar
Tottenham Hotspur og Paris Saint-Germain mættust í Meistarabikarnum í gærkvöldi og leikið var í Florída í Bandaríkjunum.

Edinson Cavani kom PSG yfir strax á 6. mínútu leiksins en leikmenn Tottenham voru ekki lengi að svara því að á 11. mínútu skoraði Daninn Christian Eriksen stórbrotið mark og jafnaði metin 1-1.

Eric Dier bætti svo við öðru marki Tottenham á 18. mínútu en Javier Pastore jafnaði metin svo í 2-2 þegar að hann skoraði annað mark Parísarmanna á 36. mínútu.

Leikar stóðu jafnir 2-2 þegar að blásið var til loka fyrri hálfleiks. Strax í byrjun á þeim síðari fékk Kevin Trapp, markvörður PSG, að líta rauða spjaldið eftir mikinn klaufagang hjá markverðinum. Þá þurftu Parísarmenn að leika manni færri nánast allan síðari hálfleikinn.

Toby Alderweireld kom svo Tottenham yfir í leiknum með marki á 82. mínútu og sex mínútum síðar bætti markaskorarinn mikli, Harry Kane, fjórða marki Tottenham við og góður sigur Lundúnarliðsins í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×