Innlent

Tveir á slysadeild eftir að bíl var ekið á staur á Gullinbrú

Atli Ísleifsson skrifar
Tveir voru í bílnum.
Tveir voru í bílnum. Vísir/Baldur
Tveir voru fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á staur á mótum Gullinbrúar og Stórhöfða um 14:45 í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru meiðslin minniháttar.

Tveir voru í bílnum sem ekið var í átt að Grafarvogi.

Umferð var hleypt framhjá slysstaðnum á meðan unnið var á vettvangi en búið er að opna fyrir umferð á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×