Fótbolti

Rúnar Már spilaði í tapi Grasshopper

Elías Orri Njarðarson skrifar
Rúnar Már í leik með Grasshopper
Rúnar Már í leik með Grasshopper visir/getty
Rúnar Már Sigurjónsson var í byrjunarliði Grasshopper sem tapaði óvænt 0-2 gegn FC Zurich í fyrstu umferð deildarinnar í Sviss.

FC Zurich komu upp í úrvalsdeildina á síðustu leiktíð og gekk Guðlaugur Victor Pálsson til liðs við félagið fyrr í mánuðnum frá Esbjerg í Danmörku en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í dag.

Raphael Dwamen kom Zurich yfir á 23. mínútu leiksins og var það eina markið sem skorað var í fyrri hálfleiknum og fóru því nýliðarnir með óvænt forskot inn í síðari hálfleikinn.

Það dró svo til tíðinda á 61. mínútu þegar að nýliðarnir brenndu af víti en þar var Michael Frey á ferðinni en Heinz Lidner, markvörður Grasshopper, varði spyrnuna frá honum.

Sjö mínútum síðar var Rúnari Má skipt af velli og á 82. mínútu leiksins bætti Raphael Dwamen sínu öðru marki við í leiknum og tryggði nýliðum Zurich sterkan sigur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×