Erlent

Starfskonur hjá BBC krefjast umbóta

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Starfskonur á BBC eru ekki sáttar.
Starfskonur á BBC eru ekki sáttar. Vísir/Getty
Launamunurinn hjá BBC hefur vakið reiði og óánægju meðal Breta og þá ekki síst meðal kvenna sem starfa hjá breska ríkisútvarpinu. Konurnar hafa skrifa opið bréf ásamt undirskriftalista þar sem þess er krafist að yfirstjórn BBC eyði launamun kynjanna. Á undiskriftarlistann hafa 42 starfskonur ritað nafn sitt að því er fram kemur í frétt New York Times og víðar.

Kjarnakonur á borð við Clare Balding, Sue Barker, Angela Rippon, Lyse Doucet, Jane Garvey, Emily Maitlis eru á meðal þeirra sem krefjast umbóta, tafarlaust.

Yfirvöld í Bretlandi þvinguðu breska ríkisútvarpið BBC til að upplýsa það hverjir eru með hæstu launin hjá fyrirtækinu. Í ljós kom þá að nokkurs munar gætir á launum karla og kvenna. Þá leiða upplýsingarnar einnig í ljós að starfsmenn sem tilheyra minnihlutahópum bera einnig skarðan hlut frá borði. Málið hefur farið hátt í breskum fjölmiðlum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×