Innlent

Tilkynningarskyldan gengur fyrir trúnaðarskyldunni í hugsanlegum ofbeldismálum

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Þórólfur Guðnason, settur landlæknir.
Þórólfur Guðnason, settur landlæknir. VÍSIR/SKJÁSKOT
Þórólfur Guðnason, settur landlæknir, segir ekki tímabært að svara spurningum um mál barnageðlæknisins sem vísbendingar eru um að hafi látið hjá líða að tilkynna grun um alvarlegt kynferðisofbeldi gegn barni sem hann hafði til meðferðar, fyrr en fjallað hefur verið um málið með formlegum hætti innan Embættis landlæknis.

Þann 17. júlí síðastliðinn sendi Barnaverndarstofa frá sér tilkynningu þess efnis að hún myndi rannsaka sérstaklega viðbrögð starfandi barnageðlæknis á svæðinu í máli karlmanns sem dæmdur var fyrr í mánuðinum fyrir kynferðisbrot gegn þremur barnabörnum sínum.

Í áðurnefndum dómi komi fram að starfandi barnageðlæknir á svæðinu hafi haft rökstuddan grun um alvarleg brot gegn einum af brotaþolunum. Legið hafi fyrir læknabréf, sem sé eitt af sönnunargögnum málsins, þar sem fram komi að læknirinn hafi búið yfir nákvæmum upplýsingum um langvarandi kynferðisofbeldi gegn ákveðnu barni.

Þórgunnur Ársælsdóttir, formaður Geðlæknafélags Íslands, vill ekki tjá sig um þetta tiltekna mál en segir í samtali við Fréttablaðið að tilkynningarskylda um hugsanlegt ofbeldi gegn barni gangi alltaf fyrir trúnaðarskyldu lækna og það sama gildi að sjálfsögðu um geðlækna. „Geðlæknar hafa ótvíræða skyldu til að senda tilkynningu um slíkan grun til barnaverndaryfirvalda,“ segir Þórgunnur.

Lögum samkvæmt ber landlækni að áminna heilbrigðisstarfsmann sem vanrækir starfsskyldur sínar, eða brýtur í bága við ákvæði í heilbrigðislöggjöf landsins. Þá getur landlæknir svipt heilbrigðisstarfsmann starfsleyfi sínu án áminningar ef hann brýtur alvarlega gegn starfsskyldum sínum, svo sem með því að sýna alvarlegt hirðuleysi í störfum sínum eða með öðru atferli sem fer í bága við lög.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×