Innlent

Ungur maður slasaðist alvarlega í fjórhjólaslysi

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag.
Töluverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í dag. Vísir/Pjetur
Ungur maður slasaðist alvarlega þegar fjórhjól, sem hann var á, valt á Selfossi um klukkan hálf ellefu í gærkvöldi. Með honum var annar ungur maður en sá slasaðist minna.

Piltarnir voru báðir fluttir á slysadeild Landspítalans í Reykjavík. Annar þeirra liggur enn á spítala en hinn hefur verið útskrifaður.

Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir í samtali við Vísi að slysið hafi orðið á opnu svæði við Selfoss, í grennd við flugvöllinn, þar sem menn eru mikið á fjórhjólum. Þá segir hann annan manninn nokkuð slasaðan.

Rannsókn málsins stendur enn yfir en tildrög slyssins liggja ekki fyrir að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×